Image Alt

UMSK

s

Umsóknafrestur í Fræðslu-og verkefnasjóð UMFÍ

UMFÍ hvetur sambandsaðila á að sækja um í Fræðslu og verkefnasjóð UMFÍ. Umsóknir á þar til gerðu eyðublaði þurfa að berast fyrir 1. apríl næstkomandi en úthlutun úr sjóðnum fer fram 1. maí.

UMFÍ hvetur sérstaklega til þess að sótt verði um styrki vegna verkefna í samræmi við stefnu UMFÍ en þar er áherslan á ungt fólk, jaðarhópa og eldra fólk.

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.

Hér eru dæmi um úthlutanir sem ungmennafélög fengu úr Fræðslu- og verkefnasjóði:

Í nóvember 2016 var úthlutað rúmum 9,6 milljónum króna.

Körfuknattleiks Fjölnis fékk nokkra styrki upp á samtals 375.000 krónur vegna dómaranámskeiða unglinga, námskeið um íþróttasálfræði og fleira. Taekwondodeild Keflavíkur fékk samtals 200.000 króna styrk m.a. vegna þjálfaranámskeiðs í Rúmeníu, til að vinna að útbreiðslu á taekwondo og UÍA fékk 250.000 krónur vegna ungmennaskiptaverkefnis.

Dæmi um fleiri úthlutanir fá sjá hér.

 

Hverjir geta sótt um í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ?

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem talið er að geti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

Úthlutun úr Fræðslu- og verkefnasjóði fer fram tvisvar á ári, sem næst 1. maí og 1. nóvember ár hvert.

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: