Image Alt

UMSK

Lífshlaupið

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ  er hafið. Verkefnið hófst þann 4. febrúar og er skráning enn í fullum gangi og ekkert of seint að skrá sig til leiks þó að verkefnið sé byrjað.

Lífshlaupið skiptist í þrjár keppnir:

  • Vinnustaðakeppni frá 4. – 24. febrúar
  • Grunnskóla-, og framhaldsskólakeppni 4. -17. febrúar
  • Einstaklingskeppni sem er í gangi allt árið

Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, heimilisstöfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Embætti landlæknis um hreyfingu. Börn og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag.

Við viljum benda á skemmtilega leiki sem eru í gangi:

Myndaleikur er í gangi á Instagram og á Facebook þar sem að þú merkir myndirnar með #lifshlaupid. Dregið verður úr innsendum myndum eða myndböndum 10., 13.,17., 20., og 24., febrúar.

Einn einstaklingur er dreginn út, í Hvatningarleik Rásar 2 og ÍSÍ, á hverjum virkum degi í þættinum Virkir morgnar á Rás 2 næstu þrjár vikurnar. Glæsilegir vinningar frá Ávaxtabílnum, Happ, Penninn/Eymundsson, Klifursetrinu, Bláa Lóninu, Kringlunni, Reebok, Skautahöllinni og Bogfimisetrinu.

Findu okkur á samfélagsmiðlunum

facebook.com/lifshlaupid

Instagram.com/lifshlaupid

twitter.com/lifshlaupid
Smelltu hér og kynntu þér málið betur.

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: