Image Alt

UMSK

Er of mikið álag á börnin okkar – framhald

Íþróttabandalag Reykjavíkur stóð fyrir ráðstefnu síðastliðinn föstudag sem bar yfirskriftina: ” Er of mikið álag á börnunum okkar?”. Framhald verður á ráðstefnunni næstkomandi föstudag þann 19.desember kl.12-13.

Þá mun Rafn Líndal, yfirlæknir Norsk Idrettsmedisinsk Institutt, sem forfallaðist síðasta föstudag flytja erindi um einkenni algengustu álagsmeiðsli barna og unglinga og hvernig beri að varast þau. Erindið verður flutt í fundarsal E í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Ekki þarf að skrá sig og er fyrirlesturinn opinn öllum áhugasömum á meðan húsrúm leyfir.

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: