Image Alt

UMSK

Viðurkenningar jafnréttis- og mannréttindaráðs 2016 Kópavogs

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs veitti Stál-úlfi viðurkenningu fyrir framlag sitt í þágu fjölmenningar og aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi.

Íþróttafélagið Stál-úlfur var stofnað í byrjun árs 2010 af litháískum íþróttamönnum búsettum hér á landi.  Hugmyndin og tilgangur félagsins er meðal annars að búa til vettvang fyrir íþróttaáhugamenn af erlendum uppruna; hvetja til heilbrigðra lífshátta, efla sjálfsmynd og aðstoða innflytjendur að aðlagast íslensku samfélagi.

Félagið teflir fram bæði fótbolta- og körfuboltaliði og hefur náð góðum árangri í sínum deildum.  Draumur félagsins er að taka upp barna- og unglingastarf og auðvitað að tefla fram liði í kvennadeild.  Félagið er í samstarfi við Retor fræðslu sem býður félagsmönnum upp á ókeypis tungumálanámskeið.

Til hamingju Stál-úlfur.

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: