Image Alt

UMSK

Styrkir til lýðháskóladvalar í Danmörku

Ungmennafélag Íslands veitir ungu fólki sem hyggur á nám við Lýðháskóla í Danmörk styrk fyrir námsárið 2015-2016.
UMFÍ og Højskolernes Hus í Kaupmannahöfn hafa gert með sér samstarfsamning um verkefni tengt námsdvöl íslenskra ungmenna við Lýðháskóla í Danmörku. Højskolernes Hus heldur utan um alla lýðháskólana og því er námsframboðið mjög fjölbreytt. Markmið verkefnisins er að gefa ungu fólki tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn. Tækifæri til að kynnast nýju tungumáli og menningu, auka færni sína og þekkingu á völdu sviði í gegnum óformlegt nám og styrkja leiðtogatogahæfileika sína um leið. UMFÍ styrkir þátttakendur til náms og verður fyrirkomulag styrkja kynnt á kynningarfundi fimmtudaginn 20.ágúst kl.16:00. Kynningarfundurinn er haldinn fyrir þau ungmenni sem hyggjast fara í nám heilt ár og á haustönn 2015.
Á kynningarfundi er markmið verkefnisins kynnt, farið yfir hlutverk nemenda, væntingar til námsins, skil á lokaskýrslum og samningar vegna styrkja undirritaðir. Kynningarfundur fyrir ungmenni sem ætla sér í nám á vorönn 2016 verður auglýstur síðar.
Umsóknarfrestur fyrir styrki á haustönn 2015 og heilt ár er til föstudagsins 31.júlí. Umsóknarfrestur fyrir styrki á vorönn 2016 er til föstudagsins 20.nóvember.
Eyðublað vegna styrksumsóknar má nálgast hér: http://umfi.is/umsokn-um-styrk-til-lydhaskoladvalar
Allar nánari upplýsingar veitir Sabína Steinunn hjá UMFÍ

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: