Image Alt

UMSK

Sigríður fékk gullmerki ÍSÍ

95. ársþing UMSK – Sigríður Bjarnadóttir í íþróttafélaginu Glóð í Kópavogi fékk gullmerki íSÍ fyrir störf sín við uppbyggingu íþróttastarfs í Glóð.

Sigríður Bjarnadóttir, Íþróttafélaginu Glóð í Kópavogi

Mynd: Hafsteinn Pálsson ÍSÍ og Sigríður Bjarnadóttir

Sigríður Bjarnadóttir er einn af stofnendum Glóðar, og starfaði um tíma sem formaður félagsins.

Hún hefur tekið virkan þátt í að gera Glóð að farsælu íþróttafélagi fyrir eldri borgara og var einn af hvatamönnum fyrir því að innleiða Ringó sem keppnisgrein á Íslandi.

Síðustu 7 ár hefur hún starfað í Íþróttanefnd Glóðar og var um tíma formaður nefndarinnar.

Hún hefur sinnt störfum fyrir Glóð af alúð og kostgæfni og lagt mikið af mörkum. Hún hefur verð ötul að sækja þingin, ekki einungis hjá UMSK, heldur líka UMFÍ og ÍSÍ.

Sigríður er áhugasöm um lýðheilsu og heilbrigð efri ár, vinnusöm og heiðarleg og okkur öllum til mikils sóma.

Sigríður er vel að því komin að hljóta Gullmerki ÍSÍ.

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: