Image Alt

UMSK

Opið fyrir umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga


Búið er að opna umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga. Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót á árinu 2015 rennur út á miðnætti mánudaginn 11. janúar 2016. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn. Til úthlutunar að þessu sinni eru 82 milljónir króna.  Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar. Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið með því að smella hér .

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra.  Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.
Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: