Bocciamót UMSK 2019
Tvímenningur í Mosfellsbæ
Bocciamót UMSK 2019 í tvimenningi verður haldið í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ sunnudaginn 3. mars 2019.
Í tvímenningi geta verið tveir karlar, tvær konur eða karl og kona.
Keppt verður í fjögurra para riðlum þar sem allir leika við alla. Efsta parið í hverjum riðli keppir síðan í undanúrslitun – og sigurvegarar í úrslitum. Fjöldi riðla helgast af þátttöku. Þrjú efstu pörin vinna til verðlauna.
Staðsetning:
Íþróttahúsið að Varmá í Mosfellsbæ.
Timasetning:
Mótið hefst kl. 10.30. mæting kl 10.00. Áætlað að því ljúki ca kl. 16.00
Keppnisfyrirkomulag:
Keppt í tvímenningi (tveir einstaklingar). Leikurinn er fjórar lotur. Hver keppandi leikur með þrjá bolta.