Sigríður fékk gullmerki ÍSÍ
95. ársþing UMSK – Sigríður Bjarnadóttir í íþróttafélaginu Glóð í Kópavogi fékk gullmerki íSÍ fyrir störf sín við uppbyggingu íþróttastarfs í Glóð.
Sigríður Bjarnadóttir, Íþróttafélaginu Glóð í Kópavogi
Sigríður Bjarnadóttir er einn af stofnendum Glóðar, og starfaði um tíma sem formaður félagsins.
Hún hefur tekið virkan þátt í að gera Glóð að farsælu íþróttafélagi fyrir eldri borgara og var einn af hvatamönnum fyrir því að innleiða Ringó sem keppnisgrein á Íslandi.
Síðustu 7 ár hefur hún starfað í Íþróttanefnd Glóðar og var um tíma formaður nefndarinnar.
Hún hefur
sinnt störfum fyrir Glóð af alúð og kostgæfni og lagt mikið af mörkum. Hún
hefur verð ötul að sækja þingin, ekki einungis hjá UMSK, heldur líka UMFÍ og
ÍSÍ.
Sigríður er áhugasöm um lýðheilsu og heilbrigð efri ár, vinnusöm og heiðarleg
og okkur öllum til mikils sóma.
Sigríður er vel að því komin að hljóta Gullmerki ÍSÍ.