Íþróttakarl og íþróttakona UMSK 2018
Á þinginu voru veittar viðurkeningar til íþróttakarls og íþróttakonu UMSK 2018. Íþróttakarl var valinn Valgarð Reinharðsson Gerplu og íþróttakona Agla María Albertsdóttir Breiðabliki.
Valgarð Reinhardsson Gerplu
Valgarð varð á liðnu ári Íslandsmeistari í fjölþraut á Íslandsmeistaramóti Fimleikasambandsins. Hann varð einnig Íslandsmeistari í fjórum greinum, á svifrá, í hringjum, á tvíslá og á gólfi. Valgarð var einn af burðarstólpunum í liði Gerplu sem sigraði á Bikarmóti Fimleikasambands Íslands annað árið í röð. Á Norðurlandameistaramótinu hafnaði hann í 6. sæti í fjölþraut og í 2. sæti á tvíslá. Á Evrópumeistaramótinu í Glasgow komst Valgarð svo fyrstur Íslendinga í úrslit í stökki, sem er frábær árangur hjá þessum unga fimleikamanni. Eftir harða keppni í úrslitum í stökki hafnaði hann að lokum í 8. sæti
Agla María Albertsdóttir Breiðablik
Agla María átti frábært tímabil með liði Breiðabliks 2018, sem er eitt það besta í sögu félagsins, en liðið varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Agla María lék alla leiki liðsins bæði í deild og bikar og skoraði í þeim 9 mörk, ásamt því að leggja upp fjölmörg mörk fyrir samherja sína. Hún lék 10 A-landsleiki á árinu, en liðið var hársbreidd frá því að komast á HM sem fram fer í Frakklandi á þessu ári. Þessi 19 ára gamla Kópavogsmær hefur alls leikið 19 landsleiki fyrir hönd Íslands og mun landsleikjunum að öllum líkindum fjölga hratt á næstu árum.