Image Alt

UMSK

Forvarnadagurinn er í dag

Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Ungmennafélags Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.

Forvarnadagurinn er haldinn að þessu sinni í níunda sinn í grunnskólum landsins og í fjórða sinn í framhaldsskólum. Á þessum degi ræða nemendur í skólunum um hugmyndir sínar og tillögur varðandi nýjungar og breytingar á æskulýðs- og íþróttastarfi, fjölskyldulífi og öðrum þeim þáttum sem eflt geta forvarnir. Hugmyndir og tillögur nemenda eru svo teknar saman og settar í skýrslu sem birt á vefsíðu dagsins, www.forvarnadagur.is Þar gefst nemendum kostur á að taka þátt í ratleik á vefsíðum ungmenna- og íþróttasamtaka og eru þar verðlaun í boði. Upplýsingar um daginn eru einnig aðgengileg á Fésbók (www.face.com/forvarnadagur)

Meginmarkmið Forvarnadagsins er að vekja athygli á því hvaða ráð hafa reynst best til að koma í veg fyrir að ungmenni verði áfengi og fíkniefnum að bráð. Þar ber hæst þátttöku í formlegu íþrótta- og tómstundastarfi og samverustundir með fjölskyldunni.

Á Íslandi hefur náðst afar góður árangur í baráttu gegn notkun áfengis og tóbaks á grunnskólastigi. Það þakka menn ýmsum þáttum. Margvíslegt tómstundastarf hefur mikið gildi í þeim efnum, svo sem starf skáta, ungmennafélaga og íþróttahreyfingarinnar. Jafnframt skiptir afar miklu máli að foreldrar ræði við börnin sín og unglinga um valkostina í frístundastarfi og þá staðreynd að líkurnar á að áfengisnotkun verði síðar vandamál minnka stórlega með hverju árinu sem unglingar draga það að bragða áfengi.
Nýlegar, athyglisverðar rannsóknir á íþróttastarfi ungmenna benda til að þær hafi þá aðeins forvarnagildi ef þær eru stundaðar með formlegum og skipulögðum hætti. Þetta ætti að vera unglingum og öðrum sem hlut eiga að máli umhugsunarefni og gefur þeim aukna ástæðu til að stunda íþróttir innan ramma íþrótta- og tómstundafélaga.

 

 

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: