Umsóknafrestur í Ferðasjóðinn
Á miðnætti í kvöld, 12. janúar 2015, mun frestur til að sækja um styrk í Ferðasjóð íþróttafélaga vegna keppnisferða innanlands árið 2014 renna út. Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma.
Sótt er um styrki í gegnum rafrænt umsóknarkerfi hér á heimasíðu ÍSÍ. Nánari upplýsingar má finna á www.isi.is en einnig er hægt að hringja á skrifstofu ÍSÍ í síma 514 4000 eða senda fyrirspurnir á netfangið halla@isi.is.
0 Comments