UMSK og HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu
UMSK og íþróttafræðideild HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu
Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.
Staðan er kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK) sem er héraðssamband íþróttafélaganna í Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kjós. Nemandi mun ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 20. júní og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkvæmt skóladagatali.
Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
- Að gera yfirgripsmikla rannsókn á starfsumhverfi innan íþróttafélaga. Rannsóknin yrði hluti af meistararitgerð til MSc. gráðu í íþróttavísindum. Markmið rannsóknarinnar er að afla gagna um helstu áhrifaþætti í starfsumhverfi einstaklinga innan íþróttafélaga hér á landi og greina hvaða þættir það eru sem helst geta sagt til um t.d. starfsánægju, árangur og framþróun í starfi og starfsaldur innan viðkomandi félags. Akademískur starfsmaður HR mun verða ábyrgðarmaður rannsóknarinnar og leiðbeinandi meistaranemans. Rannsóknin verður gerð í nánu samstarfi við UMSK.
- Starfsmenn HR og nemandi munu kynna niðurstöður ritgerðarinnar fyrir þeim aðilum sem UMSK myndi óska.
- Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við UMSK og veita þeim aðgang að verkefnum sínum.
- Nemandi skuldbindur sig til þess að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá UMSK á tímabilinu. Verknámið er ólaunað og munu verkefnin verða ákveðin í samráði við nemandann.
- Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir, ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum, UTmessu og/eða Vísindavöku.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til: