Ferðasjóður íþróttafélaga
Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið. Þar er hægt að sækja um styrk vegna keppnisferða á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2020.
Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis mánudaginn 11. janúar 2021.
Umsóknarferlið í ár er með sama hætti og áður en þar sem mótahald á árinu 2020 var afar óhefðbundið vegna afleiðinga Covid-19 þá gæti komið til breytinga á úthlutunum þannig að heildarframlag sjóðsins verði ekki allt til úthlutunar. Allar breytingar skulu unnar í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og staðfestar af því.
Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hér.
Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2020. Áætlað er að greiða út styrki úr sjóðnum í febrúar/mars 2021. Við stofnun umsóknar fær umsækjandi senda vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.
Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ, í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.