UMSK styrkir Olympiufara
Í dag veitti Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK) Þorsteini Halldórssyni, Bogfimifélaginu Boganum, styrk að upphæð kr. 500.000 vegna þátttöku hans í Paralympics í Río Brasílíu dagana 7. -18. september 2016. Fimm afreksmönnum úr röðum fatlaðra hefur tekist að tryggja sér þátttökurétt á leikunum, þrír sundmenn, frjálsíþróttamaður og svo Þorsteinn en hann er fyrsti bogfimikeppandinn sem keppir fyrir hönd Íslands á Paralympics .
Á myndinni eru: Magnús Gíslason varaformaður UMSK, Þorsteinn Halldórsson Boganum, Guðjón Einarsson þjálfari og Valdimar Leo Friðriksson formaður UMSK
0 Comments