Image Alt

UMSK

102. héraðsþing UMSK 2026 – fyrra fundarboð.

102. héraðsþing UMSK verður haldið fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 18:00 í félagsheimilinu Hlégarði, Mosfellsbæ.

Sambandsfélög eiga rétt á að senda einn fulltrúa fyrir hverja 100 félagsmenn eða færri og einn fyrir 50 umfram hundrað gjaldskyldra félagsmanna 16 ára og eldri. Þó skulu félagar aldrei vera fleiri en 9 frá sama félagi.

Vakin er athygli á að einungis fulltrúar þeirra félaga sem skilað hafa inn ársskýrslum hafa atkvæðarétt á þinginu.
Tillögur að lagabreytingum og tilkynningar um framboð til stjórnar, sem og aðrar tillögur sem leggja skal fyrir þingið, skulu berast skrifstofu UMSK eigi síðar en 20 dögum fyrir þing.

    Eins og undanfarin ár þá óskum við eftir því að aðildarfélög UMSK sendi okkur, eigi síðar en 10. mars, stutta samantekt um starfsemi félagsins síðastliðið ár ásamt mynd/myndum sem birta má í ársskýrslunni okkar (sjá síðustu ársskýrslu).

    Þá óskar stjórn UMSK eftir tilnefningum frá aðildarfélögum til Hvatningarverðlauna UMSK og að þær verði sendar á skrifstofu sambandsins á netfangið umsk@umsk.is Í reglugerð um heiðursviðurkenningar UMSK segir meðal annars: „Hvatningarverðlaun UMSK getur hlotið aðildarfélag, deild innan aðildarfélags eða einstaklingur innan aðildarfélags UMSK fyrir eftirtektarverð og framsækin verkefni sem skara fram úr eða fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins“.

    Jafnframt er óskað eftir ábendingum um einstaklinga innan aðildarfélaga UMSK sem hafa um árabil unnið öflugt starf í innan íþróttahreyfingarinnar sem tilnefna mætti til viðurkenninga á vegum UMFÍ eða ÍSÍ.

    Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda tölvupóst á umsk@umsk.is eða í síma 6965571.

    Hafðu samband

    Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

    Sími & netfang: