Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026
Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026 – Samvinna í þágu barna Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu – Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Kjós ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttahéruðunum, sem saman mynda Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, efna til sameiginlegrar farsældarviku dagana 9.–13. mars 2026. Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna. Lögin fólu í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi. Farsæld barna verður ekki tryggð nema með virkri samvinnu. Það er sameiginleg ábyrgð allra þeirra sem koma að lífi barna að vera vakandi, bregðast tímanlega við og tryggja að mál fari í réttan farveg. Með skýrara verklagi og formlegum samráðsvettvangi í gegnum Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins hefur skapast sterkari grunnur fyrir markvissa samvinnu – þar sem enginn aðili vinnur einn, heldur saman að heildstæðum lausnum í þágu barnsins. Fjölbreytt átak um allt höfuðborgarsvæðið Afar fjölbreytt vinna fer fram í tilefni af farsældarvikunni og verða hér nefnd örfá dæmi: Í Reykjavík verða vinnusmiðjur tengiliða um farsæld, kynningar á grunnstoðum farsældar, í gegnum samtal, myndbönd og fræðslu. Þá verður áhersla lögð á fjölmenningarlega farsæld og það hvernig megi betur ná til jaðarsettra hópa. Í Kópavogi verður boðið uppá fræðslufundi um farsæld fyrir forsjáraðila og starfsfólk sem starfar með börnum í bænum. Tengiliðir í skólum munu einnig vekja athygli barna, forsjáraðila og samstarfsfólks á farsæld barna með fjölbreyttum leiðum. Í Hafnarfirði verður athyglinni beint að því að kynna úrræði sveitarfélagsins og tengiliði farsældar. Hafnarfjarðarbæ hefur lagt áherslu á tengiliði á þessu skólaári og unnið að því að efla þá í starfi. Fjölbreyttar kynningar verða í skólunum þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk fær kynningu á hlutverki tengiliðar farsældar. Sveitarfélagið hefur látið útbúa veggspjöld og bækling sem lögð verður áhersla á að hengja upp og dreifa. Í Garðabæ verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir starfsfólk bæjarins,
HK auglýsir eftir nýjum framkvæmdastjóra
Handknattleiksfélag Kópavogs, HK, auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra félagsins. Við leitum að öflugum stjórnanda og leiðtoga til leiða starf
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða
Haustfundur UMSK 13.nóv
Boðað er til fundar með formönnum og framkvæmdastjórum aðildarfélaga UMSK, miðvikudaginn 13. nóvember kl. 17:30 í Stjörnuheimilinu við Ásgarð í Garðabæ. Samhliða því að
Nýtt fræðsluefni í hinseginfræðslu í íþrótta- og æskulýðsstarfi
Samtökin '78 kynntu nýtt fræðsluefni í hinseginfræðslu fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf í Íþróttamiðstöðinni við Engjaveg á mánudag. Fræðsluefnið heitir Hinsegin
Svæðisstöðvar Íþróttahéraða hafa tekið til starfa
Starfsfólk svæðisstöðva íþróttahéraðanna hefur síðustu vikur unnið að greiningum á stöðu íþróttamála um allt land. Vinnan er komin vel á
100. héraðsþing UMSK haldið hjá GKG
100. héraðsþing UMSK verður haldið fimmtudaginn 21. mars næstkomandi í veislusal Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og mun það hefjast
100. héraðsþing UMSK 2024
100. héraðsþing UMSK verður haldið fimmtudaginn 21. mars 2024 kl.18:00. Staðsetning verður kynnt í síðara fundarboði sem sent verður út eigi
UMSÓKNAFRESTUR Í AFREKSSJÓÐ UMSK
Umsóknafrestur fyrir aðra úthlutun ársins úr Afrekssjóði UMSK er til og með 31. ágúst 2023. Afrekssjóður UMSK styrkir eftirfarandi verkefni: Þátttaka í
Hvernig á að halda aðalfund hjá félagi?
Farið er yfir helstu atriði fundarskapa og félagsmála í nýju og hagnýtu upplýsingariti sem UMFÍ hefur tekið saman. UMFÍ hefur