
UMSÓKNAFRESTUR Í AFREKSSJÓÐ UMSK
Umsóknafrestur fyrir síðustu úthlutun ársins úr Afrekssjóði UMSK er til og með 20. desember 2024.
Afrekssjóður UMSK styrkir eftirfarandi verkefni:
- Þátttaka í landsliðsferðum, Norðurlandamótum, Evrópumótum, heimsmeistaramótum innanlands og utan og Olympíuleikum (leita má viðurkenningar á mótahaldi hjá viðkomandi sérsambandi).
- Önnur verkefni og sérstök afrek sem verða sérstaklega metin hverju sinni. Með sérstökum afrekum er átt við að íþróttamaður hafi verið valinn í úrvalshóp til þátttöku í Olympíuleikum, Heimsmeistara, Evrópu, eða Norðurlandamóts.
Umsóknir skulu berast frá félagi umsækjanda og á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þú finnur hér.