Image Alt

UMSK

Syndum hefst 1. nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 30. nóvember 2026. 

Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi. Sund er alhliða líkamsrækt og góð leið til heilsubótar fyrir unga sem aldna.

Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu syndum.is.
Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um sundlaugar landsins.

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. 

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband í gegnum syndum@isi.is 

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: