Image Alt

UMSK

Stjórnvöld styðja við Íþróttahreyfinguna

Íþróttahreyfingin fær 500 milljóna króna fjárframlag frá stjórnvöldum sem mótvægisaðgerð gegn tekjutapi af völdum heimsfaraldurs. Framlagið var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag í síðustu viku.

Fram kemur í umfjöllun um málið á vefsíðu Stjórnarráðsins að að samkomutakmarkanir af völdum heimsfaraldurs COVID-19 hafa sett verulegan svip á íþróttastarfið undanfarin misseri og hafi íþróttahreyfingin orðið af verulegum fjármunum vegna áhrifa þeirra á íþróttaviðburði. Einnig hafi umtalsverður kostnaðarauki fylgt þátttöku í keppnisstarfi sem sætt hefur samkomutakmörkunum.

Málið heyrir undir Ásmund Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. Haft er eftir honum í tilkynningu að stjórnvöld hafi lagt ríka áherslu á að styðja við íþróttahreyfinguna og gera henni kleift að sigla í gegnum ólgusjó heimsfaraldurs.

„Með þessum aðgerðum sýna stjórnvöld eindreginn vilja til að halda íþróttastarfinu gangandi, stóru jafnt sem smáu, með þeim jákvæðu áhrifum sem það hefur á allt samfélagið,“ segir hann.

Útfærsla úthlutunar og framkvæmdar verður unnin í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), sem verður falið að óska eftir umsóknum um stuðning vegna fjárhagslegra afleiðinga kórónuveirunnar á einingar íþróttahreyfingarinnar. Sérsambönd, héraðssambönd og íþróttabandalög, íþróttafélög með aðild að UMFÍ og ÍSÍ og deildir innan íþróttafélaga geta sótt um stuðning.

Sýna þarf fram á veruleg áhrif á rekstur og starf viðkomandi félags sem sækir um framlagið. Við úthlutun styrkja verður tekið tillit til annars stuðnings sem umsækjendur hafa notið. Kröfur til umsókna verða sambærilegar og voru við úthlutun stuðnings með sértækum hætti á árinu 2020.

Sjötíu prósent fjármagnsins rennur til sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga og 30% til íþróttafélaga þar sem sérsambönd, héraðssambönd og íþróttabandalög hafa ekki fengið bætt tjón með sama hætti og íþróttafélög.

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: