Skipulag íþróttamála – opinn hádegisfundur
Föstudaginn 14. Nóvember verður opin hádegisfundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fundarsal D.
Kjartan Freyr Ásmundsson kynnir niðurstöður úr meistararitgerð sinni, Skipulag íþróttamála – Getur íþróttahreyfingin gert betur? Kjartan Freyr hefur starfað innan íþróttahreyfingarinnar í fjölda mörg ár og lauk nýverið meistaranámi í stjórnun og stefnumótun frá viðskiptadeild HÍ. Gefið verður svigrúm fyrir spurningar og umræður að loknu erindinu.
Skráning fer fram á skraning@isi.is. Fundurinn verður sendur út á netinu. Nánari upplýsingar um það verður að finna á heimasíðu ÍSÍ.
0 Comments