Image Alt

UMSK

Ráðstefna 19. nóvember

UMSK, ÍBR og ÍBH standa að ráðstefnu um íþróttastarf barna fimmtudaginn 19. nóvember kl. 14 á Grand hótel. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum ókeypis og við hvetjum þá sem láta sig íþróttastarf barna varða til að skrá sig hér:

Íþróttastarf barna á Íslandi er gríðarlega öflugt og stendur sterkt í alþjóðlegum samanburði. Undanfarið hefur umræða meðal foreldra og íþróttahreyfingarinnar opnað á áhyggjur sem byggjast ekki síst á kostnaði og hentugleika. Æfingagjöld, búnaður, mót og ferðalög leggjast á fjölskyldur á sama tíma og við gerum meiri kröfur um hæfa þjálfara og almenn gæði. Við viljum að börnin fái að njóta sín í íþróttum og upplifa þann heilsufarslega og félagslega ávinning sem íþróttir bjóða. Við viljum líka öflugt afreksstarf sem skilar árangri á heimsvísu og hæfa þjálfara í verkefnin.

En spurningin er því hreinlega: Hvers virði er öflugt íþróttastarf barna fyrir samfélagið og hvert stefnum við?

Sjö fyrirlesarar sem búa yfir gríðarlegri þekkingu á íþróttastarfi mæta á staðinn og varpa ljósi á stöðuna. Rætt verður hvernig íþróttastarf við viljum fyrir börnin okkar, hvaða áherslur eru mikilvægar í umræðunni og hvaða tækifæri eru til staðar. Fundinum stýrir Kristjana Arnarsdóttir, sem hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlun og íþróttum.

Fyrirlesarar eru eftirfarandi:

Daði Rafnsson, fagstjóri afrekssviðs MK

Einar Ingi Hrafnsson, framkvæmdarstjóri Aftureldingar

Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður

Pálmar Ragnarsson, körfuknattleiksþjálfari

Rakel Dögg Bragadóttir, handknattleikskona og foreldri

Sólný Pálsdóttir, foreldri

Viðar Halldórsson, prófessor við HÍ

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: