
Lárus Blöndal – Heiðursviðurkenning UMSK
Á 77. Íþróttaþingi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem haldið var nú á dögunum, veitti Guðmundur Sigurbergsson, Lárusi Blöndal fráfarandi forseta ÍSÍ heiðursviðurkenningu UMSK fyrir ómetanlegt framlag sitt til íþróttastarfs á Íslandi. Lárus hefur setið í stjórn sambandsins í 23 ár, þar af 12 ár sem forseti sambandsins. Lárus hafði fyrir það verið formaður aðalstjórnar Stjörnunnar á árunum 1994-2001.

*Myndirnar tók Arnaldur Halldórsson