Hvernig á að halda aðalfund hjá félagi?
Farið er yfir helstu atriði fundarskapa og félagsmála í nýju og hagnýtu upplýsingariti sem UMFÍ hefur tekið saman.
UMFÍ hefur uppfært hagnýtar upplýsingar um fundi, hlutverk og ábyrgð stjórnarfólks, framkomu og ræðumennsku. Í efninu er með annars að finna svör við spurningum um það hvernig á að boða til aðalfundar, útskýrt hver hlutverk stjórnar eru, hvernig á að byggja upp og móta ræðu, bera fram tillögur á fámennum þingum og fjölmennum og þar fram eftir götunum.
Við vonum að upplýsingarnar komi sér vel.
Ef eitthvað er óljóst er velkomið að hafa samband við þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929 eða á netfanginu umfi@umfi.is
Efnið og myndbönd eru í verkfærakistunni á heimasíðu UMFÍ.
Þú getur smellt hér til að lesa bæklinginn.