
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn.
Opið er fyrir þriðja umsóknarfrest í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar til og með 15. október 2025.
Hér er hægt að sækja um í Hvatasjóðinn
Áhersluatriði
Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd í samstarfi við Íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.
Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem:
Auka útbreiðslu og þátttöku barna í íþróttum:
- Efla þátttöku barna með fötlun.
- Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum.
- Efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Umsóknaferli
Umsóknir eru sendar inn í gegnum vefsíður ÍSÍ og UMFÍ.
- Farðu á vefsíðu ÍSÍ eða vefsíðu UMFÍ.
- Fylltu út rafrænt umsóknareyðublað.
- Sendu umsókn áður en auglýstur umsóknarfrestur rennur út.
Í umsókn skal meðal annars tilgreina:
- Lýsingu á verkefninu og markmiðum þess
- Rökstuðning fyrir áhrifum verkefnisins á viðkomandi svæði
- Tíma- og verkáætlun
- Fjárhagsáætlun verkefnisins
Úthlutað er úr sjóðum að hámarki fjórum sinnum á ári. Síðasti frestur var til 20. maí 2025. Næsti umsóknarfrestur er til og með 15. október 2025.