Haustfundur UMSK 13.nóv
Boðað er til fundar með formönnum og framkvæmdastjórum aðildarfélaga UMSK, miðvikudaginn 13. nóvember kl. 17:30 í Stjörnuheimilinu við Ásgarð í Garðabæ.
Samhliða því að miðla upplýsingum er markmið fundarins jafnframt að gefa forsvarsmönnum aðildarfélaga tækifæri til að efla tengslin og hafa skoðanaskipti um málefni félaganna og sambandsins.
Dagskrá fundarins
- Markaðsmál íþróttafélaga – Pétur Rúnar Heimisson
- Afreksmiðstöð Íslands – Vésteinn Hafsteinsson
- Jákvæðni, hugrekki og valdefling í samskiptum – Kristján Hafþórsson
Á fundinum verður boðið upp á léttar veitingar.
Vinsamlegast látið undirritaðan vita hversu margir frá þínu félagi eru væntanlegir á fundinn með því að senda póst á umsk@umsk.is