Gervigreindarnámskeið UMSK
Kæru vinir,
Í samstarfi við Deloitte býður UMSK aðildarfélögum sínum upp á námskeið í notkun gervigreindar dagana 9. og 16. nóvember. Námskeiðið er ætlað starfsmönnum eða stjórnarmönnum félaganna og er þeim að kostnaðarlausu.
Markmiðið er að kynna grunnhugtök og virkni gervigreindar og að þátttakendur skilji hvernig nýta má tiltekna virkni og eiginleika gervigreindar til að einfalda sér vinnuna í eigin verkefnum.
Þátttakendum á námskeiðinu verður boðið upp á hádegismat á staðnum báða dagana.
Fyrri hluti, mánudaginn 9. nóvember kl. 11:00-13:30
• Hvað er gervigreind og hvað er hún ekki, hvernig virkar hún og hvert stefnir tæknin
• Ábyrg notkun: Hvað má gera, hvað ber að varast og hvernig tryggjum við örugga notkun gagna
• Að skrifa árangursríkar fyrirspurnir og fá gagnleg svör
• Algengar gildrur og hvernig má forðast þær
• Hagnýt ráð sem starfsfólk getur nýtt strax
Ávinningur: Starfsfólk öðlast grunnþekkingu á gervigreind og ábyrgri notkun og fær hagnýtar leiðbeiningar um nýtingu hennar.
Síðari hluti, mánudaginn 16. nóvember kl. 11:00-13:30
• Ítarlegri eiginleikar gervigreindartóla kynntir og sýndir með hagnýtum dæmum
• Sýnt hvernig hver eiginleiki getur létt undir með endurteknum, handvirkum eða tímafrekum verkefnum
• Umræður um hvernig dæmin eiga við verkefni og daglegt starf þátttakenda
Ávinningur: Þátttakendur sjá hvar gervigreind á við í þeirra eigin verkefnum og hvernig best er að nýta hana.
Staður: Fyrirlestrarsalur ÍSÍ í íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6
Skráning: Hvert félag getur skráð allt að 3 þátttakendur en nauðsynlegt er að skrá nöfn þeirra í skráningarformið hér.
Hafi félög áhuga á því að skrá fleiri en þrjá fulltrúa eða óskað er frekari upplýsinga má svara þessum pósti eða senda nýjan á umsk@umsk.is