Image Alt

UMSK

Auglýst eftir umsóknum um afreksstyrk úr afrekssjóði UMSK

Til aðildarfélaga UMSK. 

Stjórn afrekssjóðs UMSK auglýsir eftir umsóknum um afreksstyrk vegna afreka liða eða einstaklinga innan aðildarfélaga UMSK á undanförnum 12 mánuðum. 

Afreksstyrkir eru ný tegund styrkja sem Afrekssjóður UMSK veitir en markmið þeirra er að styrkja fjárhagslega afreksíþróttafólk og afrekshópa innan aðildarfélaga UMSK sem náð hafa afburðarárangri og gera þeim kleift að búa sig enn betur undir áframhaldandi keppni ásamt því að hvetja til frekari afreka.  

Stjórn afrekssjóðs hefur sett eftirfarandi fjögur skilyrði fyrir þeim árangri sem liggja þarf til grundvallar afreksstyrkja. Umsóknir skulu byggja á árangri sem; 

  1. Náðst hefur í efsta styrkleikaflokki (dæmi: meistaraflokkur kvk/kk) 
  2. Náðst hefur í fjölþjóðlegri keppni td. á Norðurlandamóti, Evrópumóti eða heimsmeistaramóti. 
  3. Felur í sér að afreksíþrótta-maður eða lið hafi annað hvort; 1) Lokið keppni í efstu sætum í móti eða keppni sem ekki hefur haft sérstakan áunnin undanfara 2) Tekið þátt í keppni eða móti í kjölfar þess að hafa unnið sér inn keppnisrétt með árangri sínum innanlands eða utan. 
  4. Náðst hefur (eða þátttaka í viðkomandi keppni hafist) á tímabilinu 1.11.2022 -30.11.2023. 

Umsóknir skulu vera vel rökstuddar þar sem gerð er skýr grein fyrir því í hverju árangurinn er fólgin. Í því felst meðal annars að skýra keppnisskipulag viðkomandi íþróttar og gera grein fyrir því á hvaða stigi árangurinn náðist. 

Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir tekjur og kostnað sem fallið hefur til vegna þess afreks sem sótt er um. Hafa skal í huga að umsóknir sem byggja á árangri sem falið hefur í sér tekjur fyrir umsækjanda td. þátttökugreiðslur eða verðlaunafé sem eru umfram gjöld umsækjenda af viðkomandi keppni er ekki styrkhæfar sbr. 4. gr. reglna um afrekssjóð UMSK.  

Stjórn afrekssjóðs mun meta umsóknirnar og veita þeim afrekum sem að hennar mati skara fram úr afreksstyrk úr sjóðnum. 

Umsóknarfrestur er til og með 15.12.2023. Umsóknir skulu berast frá forsvarsmanni aðildarfélags UMSK á tölvupóstfangið umsk@umsk.is en þar má einnig nálgast frekari upplýsingar. 

Hafðu samband

Skrifstofa UMSK er í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Sími & netfang: