Vinnustofa fjölmennustu aðildarfélga UMSK
UMSK boðaði á dögunm til vinnustofu með fjölmennustu aðildarfélögum sambandsins.
ÍSÍ og UMFÍ hafa að undanförnu staðið í heildstæðri stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna og ákvað UMSK því grípa tækifærið og fara yfir stöðuna innan okkar vébanda. Íþróttahreyfingin er í stöðugri þróun og mikilvægt að starfsemi UMSK endurspegli þarfir og áskoranir aðildarfélaga sinna.
Markmið fundarins var að fara yfir stöðuna í dag, ræða hvert félögin vilja stefna og hvernig UMSK getur best stutt við starf félaganna í framtíðinni.
Á vinnustofunni voru ráðgjafar frá Aton okkur til halds og traust en þeir stjórnuðu samtali og umræðuhópum þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að deila reynslu sinni, koma með hugmyndir og ræða hvaða verkefni og áherslur skipta mestu máli fyrir starf UMSK og samstarf við félögin. Með þessu var reynt að nýta þekkingu og reynslu þeirra sem starfa daglega innan aðildarfélaganna til að styrkja grunninn fyrir áframhaldandi þróun.
Þessi vinna mun síðan liggja til grundvallar frekari forgangsröðun verkefna og gagnast í að móta skýra framtíðarsýn fyrir UMSK og aðildarfélögin.