102. héraðsþing UMSK
102. héraðsþing UMSK var haldið í Hlégarði þann 26.mars síðastliðinn.
Fundarstörf gengu greiðlega fyrir sig og helstu tillögur samþykktar samhljóða.
Nýtt íþróttafélag var tekið inn í UMSK. Það var Íþróttafélagið Hraði og kynnti Pétur Ívarsson starfsemi þess.
Tvö stjórnarsæti til næstu tveggja ára voru í kjöri á þinginu en í þau var sjálfkjörið þar sem þau Lárus B. Lárusson, frá Íþróttafélaginu Gróttu og Margrét Dögg Halldórsdóttir, frá Hestamannafélaginu Herði, voru endurkjörin til tveggja ára.
Þá var Matthildur B. Stefánsdóttir frá Breiðabliki endurkjörin í varastjórn til eins árs ásamt þeim Þorvaldi Þorsteinssyni, Golfklúbbnum Oddi, og Sólborgu Sumarrós Sigurðardóttur frá Íþróttafélaginu Gerplu sem komu ný inn í varastjórn.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ ávarpaði þingið ásamt Auði Ingu, framkvæmdastjóra UMFÍ og Skúla Braga, varaformanni UMFÍ.
ÍSÍ og UMFÍ veittu eftirfarandi heiðursviðurkenningar
Gullmerki ÍSÍ
– Guðmundur Sigurbergsson, formaður UMSK.
– Jóhann Ingi Jóhannsson (Stjarnan)
Silfurmerki ÍSÍ
– Agnar Már Jónsson (GKG)
– Þorvaldur Þorsteinsson (Oddur)
– Hjalti Árnason (Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar)
– Lúðvík Örn Steinarsson (Stjarnan)
– Hallgrímur Davíð Björnsson (Breiðablik)
Gullmerki UMFÍ
– Hildur Ýr Arnardóttir (Dansfélagið Hvönn)
– Örvar Möller (Dansfélagið Hvönn)
– Algirdas Slapikas (Íþróttafélagið StálÚlfur)
– Eiríkur Mörk Valsson (Breiðablik)
– Guðrún Kristín Einarsdóttir (Afturelding)
Starfsmerki UMFÍ
– Jónas Páll Björnsson (Tennisfélag Kópavogs)
– Magnús Valgeir Gíslason (Breiðablik)
– Teitur Ingi Valmundsson (Afturelding)
– Guðrún Björg Elíasdóttir (Afturelding)
Á þinginu veitti UMSK eftirfarandi verðlaun.
Hvatningarverðlaun UMSK 2026 – Páll Líndal, Golfklúbbi Mosfellsbæjar

Undanfarin fimm ár hefur Páll Líndal staðið að golfmótinu „Palla Open“ sem hefur notið gríðarlegra vinsælda enda selst upp ár hvert. Með framtakinu hefur Palli safnað á undanförnum árum um 16 milljónum króna til góðgerðamála en fjármunirnir hafa runnið að mestu leiti til Reykjadals þar sem meðal annars eru reknar sumarbúðir fyrir fötluð börn. Að baki þessum árangri liggur ótrúleg vinna. Fyrir utan það að safna styrkjum og fá fólk og fyrirtæki með sér í lið til þess að standa sem best að golfmótinu þá er Palli útsjónarsamur. Palli hefur nefnilega lagt sig fram við að ganga um golfvelli og safna týndum boltum sem síðan eru seldir í verslun Golfklúbbs Mosfellsbæjar til frekari fjáröflunar. Fordæmið hefur svo orðið til þess að fleiri kylfingar í golfklúbbnum eru farnir að fylgja hans fordæmi og er staðan þannig núna að allir notaðir golfboltar sem við klúbburinn selur yfir sumarið kemur frá þeim og þeir skipta þúsundum.
Framlag Palla er svo sannarlega til fyrirmyndar og það er okkur því mikill heiður að veita honum hvatningarverðlaun UMSK í ár.
Félagsmálaskjöldur UMSK 2026 – Þorsteinn Þorbersgsson, Stjarnan

Steini eins og hann er oftast kallaður er sjálfboðaliði af guðsnáð og er í raun sjálfboðaliði af gamla skólanum ef svo má að orði komast. Steini er alltaf boðinn og búinn að hjálpa til og lætur ekki sitt eftir liggja. Hann hefur árum saman sinnt stjórnarstörfum bæði innan Stjörnunnar en einnig innan UMSK. Á heimaleikjum Stjörnunnar í körfubolta má til að mynda sjá hann setja upp salinn fyrir leik, hvetja liðið áfram með stuðningsliðinu á meðan leik stendur, taka að sér hlutverk vallarþuls í hálfleik og ganga svo frá öllu partýinu beint eftir leik. Steini á töluverðan þátt í verulegum uppgangi körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar á undanförnum árum en félagið er ríkjandi íslandsmeistari í körfuknattleik karla.
Íþróttakona ársins 2025 – Birta Georgsdóttir, Breiðablik

Birta var lykilleikmaður í liði Breiðabliks sem vann íslandsmeistaratitilinn með miklum yfirburðum og gerði sér lítið fyrir og vann Mjólkurbikarinn þar að auki. Þá hefur liðið einnig átt góðu gengi að fagna í evrópuleikjum sínum á árinu en liðið komst alla leið í 8 liða úrslit Evrópubikarsins. Birta var valin besti leikmaður Bestu deildarinnar en hún var næst markahæst í deildinni með 18 mörk og 7 stoðsendingar þar að auki. Ofan á allt annað er Birta frábær fyrirmynd innan sem utan vallar. Dugnaður og metnaður hefur komið henni langt en mun án efa færa henni enn meiri árangur í framtíðinni. Snemma á árinu 2026 elti Birta draum svo margra íþróttamanna og hélt út í atvinnumennsku er hún samdi við Genoa á Ítalíu.
Íþróttakarl ársins 2025 – Jón Þór Sigurðsson, Skotíþróttafélag Kópavogs

Jón Þór náði þeim árangri á árinu að enda í fyrsta sæti í flestum kúlugreinum skotfimi á Íslandi, bæði með riffli og að auki með hinum ýmsum gerðum skammbyssu. Jón gerði sér lítið fyrir og varð einnig Evrópumeistari á árinu og setti nýtt Íslandsmet í 300 metra liggjandi riffli. Þá kom Jón Þór einnig heim með brons af Heimsmeistaramótinu í sömu grein. Hann vann einnig gull á Smáþjóðaleikunum í Andorra með loftskammbyssu og sótti gull á Evrópubikarmóti í 300 metra liggjandi riffli. Þetta er einstakur árangur Íslendings á alþjóðavettvangi í íþróttum.
Lið ársins 2025 – Breiðablik, mf. kvk knattspyrnu
