Breyttar áherslur Fræðslu- og verkefnasjóðs UMSK
Stjórn Fræðslu- og verkefnasjóðs UMSK hefur tekið ákvörðun um breyttar áherslur í styrkveitingum sjóðsins sem tóku gildi 1. janúar 2026.
Reglur sjóðsins taka ekki breytingum en framvegis verður sérstök áhersla verður lögð á:
- Verkefni sem sækja nýja þekkingu inn í félögin eða hreyfinguna
- Verkefni sem stuðla að aukinni samvinnu milli aðildarfélaga UMSK
- Nýsköpunar- eða tilraunaverkefni
- Verkefni sem stuðla að þekkingu eða reynslu sem nýst getur öðrum félögum innan UMSK
- Verkefni sem efla tengsl við erlend félagasamtök eða sérsambönd
Á sama tíma verður dregið verulega úr styrkveitingum til umsókna vegna námskeiða sem einstaklingar sækja á vegum sérsambanda á borð við þjálfara- eða dómaranámskeið.
Stóraukin fjöldi umsókna um styrki vegna slíkra námskeiða hefur gert það að verkum að erfitt getur reynst að afgreiða þær með samræmdum og sanngjörnum hætti milli félaga.
Aðildarfélög UMSK geta þó enn sótt um styrki vegna þessara verkefna í Fræðslu og verkefnasjóð UMFÍ sem styrkir flest slík námskeið um 50%.
Markmið breytinganna er að tryggja að dreifing styrkja verði sem eðlilegust milli félaga, deilda og ólíkra verkefna ásamt því að styðja enn fremur við verkefni sem byggja upp þekkingu eða reynslu sem fleiri félög en einungis styrkþegi getur byggt áfram á.
Ekki hika við að hafa samband við skrifstofu UMSK ef þörf er á frekari upplýsingum!