1. 14% renna til sambandsins
2. 7% renna til Afrekssjóðs UMSK
3. 79% renna til aðildarfélaga samkvæmt eftirfarandi skiptingu (skipt upp í 100%):
- Þeim 79% sem koma í hlut félaganna verði fyrst skipt eftir íbúafjölda sveitarfélaganna á sambandssvæðinu m.v. íbúaskrá 1. desember ár hvert og síðan innbyrðis innan sveitarfélaganna eftir iðkendafjölda félaganna m.v. upplýsingar í FELIX.
- Iðkendur hafi mismikið vægi eftir aldri þegar kemur að útreikningi hlutar hvers félags, þannig hafi iðkendur 5 ára og yngri stuðulinn (1), iðkendur 6-12 ára stuðulinn (3), iðkendur 13 – 18 ára stuðulinn (5), iðkendur 19 – 24 ára stuðulinn (3) og iðkendur 25 ára og eldri stuðulinn (1).
Ný aðildarfélög þurfa að hafa starfað í 2 ár áður en þau eiga rétt á Lottótekjum. Á þó ekki við
þegar um er að ræða sameiningu félaga innan sambandsins.
Breyting á Lottóreglugerð tekur gildi fyrsta dag næsta árs eftir að breytingin er samþykkt
Samþykkt á 90. ársþingi UMSK 27. febrúar 2014