Aldarsaga UMSK 1922-2022

672 3. gr. Skipan og hlutverk stjórnar Stjórn sjóðsins er stjórn UMSK eins og hún er skipuð hverju sinni. Hlutverk sjóðsstjórnar er að samþykkja umsóknir um styrki úr sjóðnum og fylgjast með nýtingu styrkja. Framkvæmdastjóra UMSK er heimilt, milli stjórnarfunda, að samþykkja einstakar styrkumsóknir þjálfara allt að 50.000 kr. enda séu umsóknir í samræmi við áherslur stjórnar og studdar með fullnægjandi gögnum. Slíkar umsóknir skulu lagðar fram af framkvæmdastjóra ásamt fylgigögnum á næsta fundi stjórnar UMSK til staðfestingar. Framkvæmdastjóra er ekki heimilt að samþykkja fleiri en 2 umsóknir milli stjórnarfunda. Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um styrkumsóknir hærri en 50.000 kr. 4. gr. Markmið Markmið sjóðsins er að styðja við og efla fræðslu þjálfara hjá aðildarfélögum UMSK með því að gera þeim kleift að sækja viðurkennd námskeið á sviði íþróttafræða, þjálfunar og með heimsóknum til viðurkenndra aðila eða félagsliða erlendis. Við veitingu styrkja er tekið sérstakt tillit til námskeiða sem ekki eru í boði hérlendis og möguleika þjálfara til endurmenntunar í íþróttagrein sinni. Einnig má veita styrki til greiðslu þátttökugjalda veigameiri viðurkenndra námskeiða, til starfsréttinda, sem haldin eru með fjarfundarbúnaði eða yfir internetið. 5. gr. Skilyrði Umsækjendur skulu vera starfsmenn aðildarfélaga UMSK, eða einstakra deilda eftir atvikum. Umsóknir skulu ávallt koma frá félagi umsækjanda. Umsókn skal gefa skýrt til kynna hver ávinningur af verkefninu er fyrir umsækjanda og aðra þá hagsmunaaðila sem verkefninu tengjast. Ekki eru veittir styrkir til fleiri en tveggja einstaklinga frá sama félagi á sama námskeið. 6. gr. Umsóknir Ekki er sérstakur umsóknarfrestur fyrir umsóknir í sjóðinn. Umsóknir skulu berast skrifstofu UMSK á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Sjóðsstjórn er heimilt að hafa frumkvæði að einstökum styrkveitingum. Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að afla sér nánari upplýsinga en þeirra sem fram koma á umsóknareyðublöðum og leita umsagnar annarra aðila. Sjóðsstjórn metur hverja umsókn til samþykktar eða synjunar. Ófullnægjandi gögn geta valdið höfnun umsóknar. Styrkir eru alla jafna greiddir út eftir að námskeið eða ferð hefur verið farin og fullnægjandi grein hefur verið gerð fyrir verkefninu. Í því felst að skila þarf staðfestingu til skrifstofu UMSK um að þjálfari hafi lokið námskeiði eða heimsókn. Þó er heimilt að víkja frá þessari reglu ef ríkar ástæður eru fyrir hendi. Styrkja ber að vitja innan árs frá lokum verkefnis, að öðrum kosti falla þeir niður. Stjórn sjóðsins gefur ekki út rökstuðning fyrir samþykkt eða synjun styrkja. 7. gr. Uppgjör Framkvæmdastjóri skal skila skýrslu til stjórnar UMSK á 6 mánaða fresti þar sem m.a. sé gerð grein fyrir styrkveitingum og fjárreiðum sjóðsins. Rekstrar- og efnahagsreikning sjóðsins skal birta árlega í skýrslu UMSK, sem lögð er fram á ársþingi UMSK. Skoðunarmenn UMSK eru jafnframt skoðunarmenn reikninga sjóðsins. 8. gr. Gildistími Reglugerð þessi tekur gildi þegar stjórn UMSK hefur staðfest hana og gildir þar til stjórn UMSK ákveður annað. Samþykkt á fundi stjórnar UMSK þann 9. desember 2020991 Styrkveitingar úr Þjálfarasjóði UMSK Sem dæmi um styrkveitingar úr Þjálfarasjóði UMSK má nefna árið 2019, þá voru veittir 13 styrkir úr sjóðnum sem skiptust þannig milli félaga: – Siglingafélagið Ýmir: Einn styrkur. – Ungmennafélagið Afturelding: Einn styrkur. – Íþróttafélagið Gerpla: Fjórir styrkir. – Ungmennafélagið Breiðablik: Einn styrkur. – Ungmennafélagið Stjarnan: Sex styrkir.992 Lög Ungmennasambands Kjalarnesþings 1. gr. Heiti og sambandssvæði Sambandið heitir Ungmennasamband Kjalarnesþings, skammstafað UMSK. Sambandssvæðið er Garðabær, Kjósin, Kópavogsbær, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær. UMSK starfar samkvæmt lögum ÍSÍ og UMFÍ. 2. gr. Markmið og hlutverk a. Að vera leiðandi héraðssamband og öflugur bakhjarl aðildarfélaga á félagssvæðinu sem eflir enn frekar starf félaganna með virkum sam-

RkJQdWJsaXNoZXIy MjQwMzI0OQ==