Aldarsaga UMSK 1922-2022

671 þúsund krónur vegna fræðsludags fyrir þjálfara deildarinnar. i) Handknattleiksdeild Stjörnunnar fékk 50 þúsund krónur vegna kynningarinnar „Kíktu í handbolta“ og 50 þúsund krónur vegna þjálfaranámskeiðs. Tennisfélag Kópavogs fékk 50 þúsund krónur vegna þjálfaranámskeiðs í Tyrklandi. UMSK fékk 150 þúsund krónur í styrk vegna námskeiðs fyrir dansþjálfara.990 Reglugerð um Fræðslu- og verkefnasjóð UMSK 1. gr. Hlutverk Heiti sjóðsins er Fræðslu- og verkefnasjóður UMSK. Hlutverk hans er að styrkja fræðsluverkefni og sérstök verkefni aðildarfélaga UMSK. Stjórn UMSK skal í upphafi hvers starfsárs ákveða áherslur styrkveitinga fyrir komandi ár og nánari vinnureglur. 2. gr. Fjármagn Fjármagn fær sjóðurinn af tekjum UMSK og skal stjórn UMSK ákveða framlag í sjóðinn í fjárhagsáætlun hvers árs. Jafnframt er heimilt að leita eftir viðbótarfjármagni frá öðrum aðilum. Stjórn sjóðsins skal í upphafi hvers árs ákveða styrkfjárhæðir, jafnframt er stjórn heimilt að takmarka fjölda styrkja til einstaks aðildarfélags. Óheimilt er að skuldbinda sjóðinn umfram þær fjárhæðir sem til hans eru lagðar í fjárhagsáætlun hverju sinni. 3. gr. Skipan og hlutverk stjórnar Stjórn sjóðsins er stjórn UMSK eins og hún er skipuð hverju sinni. Hlutverk sjóðsstjórnar er að samþykkja umsóknir um styrki úr sjóðnum og fylgjast með nýtingu styrkja. Framkvæmdastjóra UMSK er heimilt, milli stjórnarfunda, að samþykkja einstakar styrkumsóknir aðildarfélaga allt að 50.000 kr. enda séu umsóknir í samræmi við áherslur stjórnar og studdar með fullnægjandi gögnum. Slíkar umsóknir skulu lagðar fram af framkvæmdastjóra ásamt fylgigögnum á næsta fundi stjórnar UMSK til staðfestingar. Framkvæmdastjóra er ekki heimilt að samþykkja fleiri en 3 umsóknir milli stjórnarfunda. Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um styrkumsóknir hærri en 50.000 kr. 4. gr. Markmið Markmið sjóðsins er m.a. að styðja við fræðslu iðkenda, starfsmanna aðildarfélaga og forráðamanna iðkenda í víðum skilningi ásamt því að styrkja verkefni sem efla innra starf félaga eða einstakra deilda þeirra. Þá skal sjóðurinn styðja við nýsköpun á sviði íþrótta og aukna útbreiðslu íþrótta meðal allra aldurshópa. 5. gr. Skilyrði Umsækjendur skulu vera aðilar að UMSK, félög eða einstakar deildir félaga eftir atvikum. Ekki eru teknar til greina umsóknir frá einstaklingum. Umsókn skal gefa skýrt til kynna hver ávinningur af verkefninu er fyrir umsækjanda og þá hagsmunaaðila sem verkefninu tengjast. Sjóðurinn styrkir ekki tækja- og áhaldakaup, launakostnað starfsmanna aðildarfélaga, ferðakostnað eða almennan fundakostnað. 6. gr. Umsóknir Ekki er sérstakur umsóknarfrestur fyrir umsóknir í sjóðinn. Umsóknir skulu berast skrifstofu UMSK á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Sjóðsstjórn er heimilt að hafa frumkvæði að einstökum styrkveitingum. Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að afla sér nánari upplýsinga en þeirra sem fram koma á umsóknareyðublöðum og leita umsagnar annarra aðila. Sjóðsstjórn metur hverja umsókn til samþykktar eða synjunar. Ófullnægjandi gögn geta valdið höfnun umsóknar. Reglugerð um þjálfarasjóð UMSK 1. gr. Hlutverk Heiti sjóðsins er Þjálfarasjóður UMSK. Hlutverk hans er að styrkja þjálfara aðildarfélaga UMSK til að sækja námskeið sem og þekkingu erlendis sem ekki er í boði hérlendis. Stjórn UMSK skal í upphafi hvers starfsárs ákveða áherslur styrkveitinga fyrir komandi ár og nánari vinnureglur. 2. gr. Fjármagn Fjármagn fær sjóðurinn af tekjum UMSK og skal stjórn UMSK ákveða framlag í sjóðinn í fjárhagsáætlun hvers árs. Jafnframt er heimilt að leita eftir viðbótarfjármagni frá öðrum aðilum. Stjórn sjóðsins skal í upphafi hvers árs ákveða styrkfjárhæðir, jafnframt er stjórn heimilt að takmarka fjölda styrkja til einstaks aðildarfélags. Óheimilt er að skuldbinda sjóðinn umfram þær fjárhæðir sem til hans eru lagðar í fjárhagsáætlun hverju sinni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjQwMzI0OQ==